Ekki láta áramótabrennur brenna inni

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra hvetur þá sem hyggjast standa fyrir áramótabrennum að drífa í að sækja sem fyrst um starfsleyfi en samkvæmt reglugerð umhverfisráðuneytisins  um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit tekur leyfisveitingin a.m.k. 5 vikur. Ástæðan er sú að það ber að auglýsa eftir athugasemdum í fjórar vikur og taka síðan saman greinargerð um útgáfuferil starfsleyfisins.

Á heimasíðu Heilbrigðiseftirlitsins kemur fram að starfsleyfisferlið sé það sama og ef um væri að ræða olíubirgðastöð, en vonir standa til að ferlið verði að einhverju leyti einfaldað með að gera brennur skráningaskyldar hjá Umhverfisstofnun. Málsmeðferðin felur í sér að auglýsa eða upplýsa eigi almenning í þremur skrefum um fyrirhugaða starfsemi og gefa kost á athugasemdum, eins og fyrr greinir. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir