Eldsmiðja FNV vígð í dag
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
20.04.2016
kl. 09.01
Eldsmiðja Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, sem staðsett er í Hátæknimenntasetri skólans, verður vígð við hátíðlega athöfn í dag, miðvikudaginn 20. apríl kl. 16:00. Á vefsíðu skólans kemur fram að í tilefni vígslunnar mætir Beate Stormo, Norðurlandameistari í eldsmíði, á staðinn og vígir aðstöðuna.
Allir eru boðnir velkomnir, segir á vef skólans.
