Féll algjörlega fyrir Zanadu / SVANA BERGLIND

Svana Berglind Karlsdóttir svarar Tón-lystinni að þessu sinni. Svana er af árgangi 72 sem hún líkir við rauðvín í eikartunnu – eldist semsagt nokkuð vel. Aðal hljóðfærið hennar er röddin en hún tók þó einnig 7. stig á píanó hjá Evu Snæbjarnar á sínum tíma. „Hljóðfærin eru því miður vanrækt síðustu árin eftir að ég fór í gullsmíðina og getan eftir því,“ segir Svana en aðspurð um helstu afrek á tónlistarsviðinu segir hún: „Afrek er stórt orð. En ætli ég sé ekki ánægðust með að hafa sungið ásamt Sopranos tríóinu mínu á nokkrum styrktartónleikum og þannig látið gott af mér leiða.“

Hvar ólstu upp/hverra manna? Dóttir Kristínar Guðjónsdóttur frá Selá á Skaga og Karls Holm af Víknaættinni á Skaga. Systir Fanneyjar sjúkraþjálfara, Ingu ljósmóður og Guðjóns á Arnari-HU. Fædd og uppalin á Króknum, fyrstu árin á Sæmundargötunni en svo í Víðihlíðinni þar til ég fór að reyna að sigra heiminn.

Hvaða lag varstu að hlusta á? Er stödd á sundlaugarbakka á Mallorca og í græjunum gellur Happy (Pharrell Williams) sennilega í tíunda skiptið í dag.

Uppáhalds tónlistartímabil? Ég veit ég ætti að segja eitthvað gáfulegt og fágað eins og síðrómantíska tímabilið en ég verð bara að segja D.I.S C.O.

Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Frönsk kaffihúsatónlist. Það er eitthvað einstaklega sumarlegt við hana.

Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Þar var nú bara Gufan á alla daga svo að það var hækkað þegar síðasta lag fyrir fréttir, Haukur Morteins, harmónikkutónlist og svoleiðis klassík, var í útsendingunni.

Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Fyrsta platan sem ég eignaðist var Burt með reykinn sem gefin var út í tilefni af reyklausa deginum 1979 og innihélt 2 lög. Þessa gersemi fékk ég á tombólu og var harla ánægð með.

Hvaða græjur varstu þá með? Ég hef nú sennilega hlustað á þetta á græjunum hans Guðjóns bróður sem hljóta að hafa verið Pioneer eða Marantz.

Hver var fyrsta platan sem þú óskaðir þér í jólagjöf? Ó guð! Fyrsta platan sem ég féll algerlega fyrir var Xanadu sem var úr samnefndri kvikmynd. Þetta var skringileg samsuða af tónlist Electric Light Orchersta og Olivia Newton John sem hitti mig beint í hjartastað.

Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Sirka allt frystihúsatímabilið hans Bubba!

Uppáhalds Júróvisjónlagið? Skeggjaða konan alla leið, Rise like a Phoenix. Alveg magnað lag sem hefði átt að vera í Bond mynd.

Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Think með Aretha Franklin.

Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Þrjár síðustu pianósónötur Schuberts. Þá yrði ég ljúf sem lamb allan daginn.

Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ég færi til NY á Metropolitan óperuna þar sem Kristinn Sigmundsson syngi hlutverk Filippo konungs í Don Carlos og ég tæki mömmu með.

Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst kominn með bílprófið? Það ku hafa verið þeir nafnar Michael Jackson og George Michael en svo fengu drengirnir í Queen líka oft orðið.

Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Það er nú gömul saga og ný að sá tónlistarmaður sem ég hef alltaf litið mest upp til er Kristinn Sigmundsson. Þar mætast hæfileikar, vinnusemi, virðing fyrir viðfangsefninu, og svo náttúrulega þessi ótrúlegi sjarmi hans Kristins. Þessi aðdáun hefur nú varað í 37ár og vex bara í hvert sinn sem ég hef tækifæri til að sjá og heyra hann.

Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Ég er svo mikil alæta á tónlist að það væri bara rugl að velja eina plötu. Svo er það líka misjafnt á hverjum degi hvort mig langar að hlusta á klassík, diskó, lyftutónlist, vinsældarlistann eða jazz svo að það er bara no comment á þessa spurningu.

Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum?
Fix You
– Coldplay
Ain´t No Sunshine – Bill Withers
Piano Man – Billy Joel
The Look of Love – Diana Krall
Feeling Good – Mikael Bublé

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir