Eyfi fimmtugur á Blönduósi
Þann 17. apríl s.l. varð Eyjólfur „Eyfi“ Kristjánsson fimmtugur. Af því tilefni er hann nú á mikilli tónleikaferð um Ísland og mun hann heimsækja 50 staði víðsvegar um landið. Hann verður með tónleika í Blönduósskirkju þriðjudagskvöldið 17. maí kl. 20:30.
Eyfi fer yfir 30 ára feril sinn sem tónlistarmaður, spjallar á léttum nótum við tónleikagesti og flytur öll sín þekktustu lög ( Nína—Álfheiður Björk—Dagar— Kannski er ástin—Ég lifi í draumi—Danska lagið—Góða ferð o.m.fl. )
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30
Aðgangseyrir er kr. 2.000 og fer miðasala fram við inngang.
