Fiskverkandi í húsnæðisleit

Á heimasíðu sveitarfélagsins Skagastrandar kemur fram að fiskverkandi þar í bæ leitar eftir atvinnuhúsnæði til leigu á Skagaströnd.

Er viðkomandi að leita eftir 50 til 100 fermetrum sem henta fyrir fiskvinnslu, pökkun og söltun. Nauðsynlegt er að aðgangur sé að heitu og köldu vatni.

Nánari upplýsingar gefur Brynjólfur John Gray í síma 845 7519, netfangið er adalgata3b@simnet.is.

Fleiri fréttir