Fjármagna kaup á leiðsöguhundi með sölu á dagatali - Stuðningur til sjálfstæðis!

Már Gunnarsson og leiðsöguhundur þjálfun en hann var fenginn að láni í þessari myndatöku. Mynd aðsend.
Már Gunnarsson og leiðsöguhundur þjálfun en hann var fenginn að láni í þessari myndatöku. Mynd aðsend.

Tónlistarmaðurinn Már Gunnarsson vekur athygli á Facebooksíðu sinni hve erfitt það er fyrir blinda að eignast leiðsöguhunda en þeir geta verið besta hjálpin hjá þeim sem þurfa. Fyrir rúmu ári sótti hann um hund en Blindrafélagið hefur einungis fjármagn til að kaupa tvo hunda á ári og 18 eru á biðlista. Hann segir að þegar hann var sex ára hafi hann fengið að kynnast hvíta stafnum og notkun hans en að nota þannig prik sé ekki bara að ganga um og „dingla honum hingað og þangað“, eins og hann segir sjálfur heldur krefst notkun hans mikillar færni í daglegu umferli blinds einstaklings. Í gegnum stafinn skynjar hann t.d. kanta, tröppur, staura, alls konar undirlag og ekki síst gangandi fólk.

„Það skiptir miklu máli að fólk sem mætir mér úti á götu viti að ég sjái ekki, upp á mitt öyggi og ekki síður þeirra, þar er stafurinn lykilatriði. Því miður eru margir blindir einstaklingar sem skammast sín fyrir að nota staf og kjósa frekar að sleppa honum sem getur beinlínis verið lífshættulegt og aftrar þeim við að gera það sem annars væri vel mögulegt.

Þegar ég var yngri kom það alveg fyrir að ég kaus að sleppa stafnum og ég má vera þakklátur fyrir að hafa enn framtennur mínar miðað við þá hluti sem ég hef gengið á og ekki slasað mig! Stafurinn er orðinn hluti af mér og ég fer ekki út úr húsi án þess að hafa hann með. Stafurinn er samt alls ekki töfralausn á öllu og tæki það allt of mikið pláss að fara yfir öll þau atriði í okkar umhverfi sem skapar vandræði eða hættu. Í stuttu máli rafmagnsbílar vegaframkvæmdir ,ónærgætið fólk og hlutir í höfuðhæð.

Fyrir rúmu ári tók ég þá ákvörðun um að sækja um leiðsöguhund og með því færa mína hæfni, öryggi og sjálfstæði upp á hærra plan. Leiðsöguhundum er úthlutað einu sinni á ári af hinu opinbera og kostar hundurinn fullþjálfaður til lanndsins 4 til 6 miljónir. Aftur á móti hefur Blindrafélagið þurft að fjármagna hundana og gefið ríkinu. Blindrafélagið hefur einungis fjármagn til að kaupa tvo hunda á ári og erum við 18 á biðlista!,“ skrifar Már.

Nú leitar Blindrafélagið til almennings og býður leiðsöguhunda-dagatalið til sölu til styrktar verkefninu og hvert framlag vel þegið. „En ef einhverjum dettur í hug sniðug leið til að setja hærra fjármagn í verkefnið, til að grisja þennan 18 manna biðlista sem lengist á hverju ári, má endilega hafa beint samband við mig og ég kem hlutunum áleiðis, eða hafa samband við Blindrafélagið. Sérfræðingar segja að blindur einstaklingur ásamt leiðsöguhundi staf og farsíma með leiðsögubúnaði séu allir vegir færir,“ segir Már sem hvetur alla til að kaupa dagatal.

HÉR má nálgast dagatalið í vefverslun.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir