Foreldrar ósáttir við vinnubrögð við skólasameiningu
Stjórn foreldrafélags Húnavallaskóla átaldi á síðasta fundi sínum vinnubrögð hreppsnefndar og fulltrúa hennar í undirbúningi að sameiningu leik- og grunnskóla á Húnavöllum.
Var bókun frá foreldraráði tekin fyrir á hreppsnefndarfundi í Húnavatnshreppi sem ákvað að óska eftir því að stjórn Foreldrafélags Húnavallaskóla mæti á næsta hreppsnefndarfund sem fyrirhugaður er þann 27. apríl n.k. ásamt starfshópi um samrekstur skóla á Húnavöllum þar sem farið yrði yfir þær ávirðingar sem koma fram í bókun stjórnarinnar frá 11. apríl sl.
