Fyrsta skóflustungan tekin að nýju húsnæði Byggðastofnunar

Stórvirk grafa var notuð í fyrstu skóflustungu Byggðastofnunarhússins en Vinnuvélar Símonar ehf. áttu lægsta boð í jarðvinnu. Mynd: Hjalti Árna.
Stórvirk grafa var notuð í fyrstu skóflustungu Byggðastofnunarhússins en Vinnuvélar Símonar ehf. áttu lægsta boð í jarðvinnu. Mynd: Hjalti Árna.

Síðast liðinn föstudag tók Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, fyrstu skóflustunguna að nýju skrifstofuhúsnæði fyrir Byggðastofnun að Sauðármýri 2 á Sauðárkróki. Þar með hefjast framkvæmdir við fyrsta áfanga verksins, sem er jarðvinna en á allra næstu vikum verður bygging hússins boðin út og standa vonir til að framkvæmdum verði að fullu lokið um mitt ár 2020.

Byggðastofnun fluttist frá Reykjavík til Sauðárkróks árið 2001 og hefur frá þeim tíma verið í leiguhúsnæði sem hentar starfseminni ekki lengur en starfsmenn eru 27. Á heimasíðu stofnunarinnar kemur fram að ítarlegt mat á valkostum í húsnæðismálum Byggðastofnunar á Sauðárkróki hafi farið fram í samstarfi við Framkvæmdasýslu ríkisins og er niðurstaðan á þann veg að hagkvæmast reynist að byggja hús sem sérstaklega er lagað að þörfum hennar.

„Meðal þess sem haft hefur verið í huga við hönnun hússins er að þar verði snertistöðvar sem hægt verður að bjóða starfsmönnum annarra stofnana eða ráðuneyta til afnota um lengri eða skemmri tíma.  Má í því sambandi minna á að með samþykkt stefnumótandi byggðaáætlunar 2018-2024 hefur Alþingi mótað stefnu um störf án staðsetningar og er stefnt að því að 10% allra auglýstra starfa í ráðuneytum og stofnunum þeirra verði án staðsetningar árið 2024.  Það er vel til þess fallið að styrkja og efla ímynd Byggðastofnunar sem sjálfstæðrar stofnunar sem vinnur að mikilvægum málum lands og þjóðar.  Það treystir hana einnig í sessi til framtíðar hér á Sauðárkróki,“ segir á byggdastofnun.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir