Giljagaur mættur

Giljagaur er annar í röð jólasveinanna. Hann faldi sig í fjósinu og fleytti froðuna ofan af mjólkurfötunum þegar enginn sá til. Í gömlum heimildum er getið um Froðusleiki og ekki er ólíklegt að þar sé sami sveinn á ferð. Af heimasíðu Jólamjólkur.

Af því að Giljagaur mætti til byggða í nótt fáum við Ruth Reginalds til að syngja hér hið stórgóða laga Ég sá mömmu kyssa jólasvein. Það er sígilt og kemur manni alltaf í jólaskap. Hinrik Bjarnason gerði textann við lag T Connor.

Á Jólamjólk.is er hægt að sendu vinum og vandamönnum skemmtilega jólakveðju. Sjá HÉR.

Giljagaur var annar,    
með gráa hausinn sinn. 
Hann skreið ofan úr gili 
og skaust í fjósið inn.  

Hann faldi sig í básunum 
og froðunni stal, 
meðan fjósakonan átti 
við fjósamanninn tal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir