Glúmur Baldvinsson skipar oddvitasæti fyrir Frjálslynda lýðræðisflokkinn

Í tilkynningu frá Frjálslynda lýðræðisflokknum kemur fram að Glúmur Baldvinsson muni skipa oddvitasæti fyrir Frjálslynda lýðræðisflokkinn (X-O) í komandi alþingiskosningum. Glúmur er með BA gráðu í stjórnmálafræði og hagfræði frá Háskóla Íslands, MSc gráðu í alþjóðasamskiptum og evrópufræðum frá London School of Economics og MA gráðu í alþjóðasamskiptum og alþjóðaviðskiptum frá University of Miami.

Glúmur hefur starfað hjá Fríverslunarsamtökum Evrópu, EFTA, Sameinuðu þjóðunum, International Relief and Development í Washington, ICEAID, Þróunarsamvinnustofnun Íslands, Íslensku friðargæslunni, Tryggingastofnun ríkisins og sem fréttamaður á RÚV og Stöð 2 auk þess að hafa starfað sem leiðsögumaður og sjómaður á Íslandi.

„Þegar ég var ungur maður var ég oft spurður hvort ég ætlaði ekki í pólitík eins og afi og pabbi. Ég svaraði neitandi. Skyldi ég í pólitík væri það ekki út af ætterni mínu heldur einvörðungu eftir að ég hefði öðlast einhverja lífsreynslu og ástríðu fyrir því sem betur mætti fara í samfélagi okkar. Ég átti vini sem dýrkuðu ákveðinn stjórnmálaflokk, fóru í lögfræði og beint í framboð án þess að vita nokkuð um hvað veröldin snerist og án skilnings á þjóðinni sem pólitíkusinn á að þjóna. Nú er ég eldri og finn mig knúinn til að gera eitthvað í málunum og leggja mitt af mörkum þegar staðan í þessu samfélagi er þannig að fjölskyldur teljandi á fingrum annarrar handar eiga landið til sjávar og sveita. Einu sinni var talað um Ísland sem stéttlaust land.

Það var firra þá en enn meiri firra nú og það sem verra er er að stærstu fjölmiðlar landsins eru í eigu sömu fjölskyldna og eiga landið. Ísland er eitt spilltasta ríki í norðri jarðar. Hvernig má slíkt vera í svo smáu samfélagi sem ætti í raun að vera fyrirmynd annarra samfélaga um jöfnuð og velferð? Ég hef val. Að sitja hjá og röfla á samfélagsmiðlum eða sigla úr vari og taka þátt og láta til mín taka. Ég vel síðari kostinn,“ segir Glúmur Baldvinsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir