Greiðslum til sauðfjárbænda vegna COVID-19 flýtt

Skagfirskt sauðfé. Mynd:FE
Skagfirskt sauðfé. Mynd:FE

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð sem flýtir stuðningsgreiðslum við sauðfjárrækt um nokkra mánuði. Er það gert til að bregðast við áhrifum COVID-19 veirunnar á íslenskan landbúnað en aðgerðin mun sérstaklega nýtast þeim stóra hópi sauðfjárbænda sem stundar aðra starfsemi samhliða búskap, t.d. í ferðaþjónustu, og hafa fundið fyrir miklum áhrifum COVID-19 á greinina.

„Undanfarnar vikur höfum við í mínu ráðneyti leitað allra leiða til að lágmarka neikvæð áhrif COVID-19 veirunnar á bæði landbúnað og sjávarútveg til lengri og skemmri tíma. Með þessari breytingu erum við að koma sérstaklega til móts við sauðfjárbændur og reyna að milda höggið sem veiran hefur á starfsemi sauðfjárbænda um allt land,“  segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: á vef ráðuneytisins.

Ráðherra fól framkvæmdanefnd búvörusamninga að leita leiða til að færa til fjármuni innan ársins 2020, í samræmi við gildandi búvörusamninga, til að koma sérstaklega á móts við innlenda matvælaframleiðslu sem glímir nú við tímabundna erfiðleika. Ein tillaga nefndarinnar er sú að að flýta greiðslum til sauðfjárbænda þannig að greiðslu fjármuna, sem áttu að koma til framkvæmda þann 1. september og 1. október 2020, verði flýtt til 1. maí og 1. júní.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir