Greinargerð sóknaráætlana

Út er komin greinargerð sóknaráætlana landshluta fyrir tímabilið 2015-2019 en sóknaráætlanir eru samstarfsverkefni ráðuneyta og sveitarfélaga. Markmið þeirra er að færa aukin völd og ábyrgð til landshlutanna á ráðstöfun fjármuna frá ríkisvaldinu til verkefna á sviði byggðamála og samfélagsþróunar. 

Í greinargerðinni kemur m.a. fram að rúmum fimm milljörðum króna var varið til sóknaráætlana landshluta á tímabilinu. Af þessum rúmu fimm milljörðum komu fjórir frá ríkinu en tæpar 500 m.kr. frá sveitarfélögunum. Unnið var að 283 áhersluverkefnum um land allt og framlag til þeirra nam 1,6 milljörðum króna. Styrkir úr uppbyggingarsjóði námu 2,3 milljörðum króna á tímabilinu og voru 2.966 verkefni styrkt, en rúmar 5.000 umsóknir bárust.

Samráð og samvinna ríkis og sveitarfélaga fer fyrst og fremst fram í gegnum stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál og landshlutasamtök sveitar­félaga. Landshlutasamtök sveitarfélaga skipa samráðsvettvang í hverjum landshluta og skilgreina hlutverk og verkefni hans.  Samráðsvettvangurinn hefur beina aðkomu að gerð sóknaráætlunar.

Samkvæmt samningum um sóknaráætlanir renna framlög ríkisins annars vegar til áhersluverkefna og hins vegar til uppbyggingarsjóða. Uppbyggingarsjóðir eru samkeppnissjóðir. Áhersluverkefni eru samningsbundin verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar landshlutans og áherslna samráðsvettvangs og þar er ekki gerð krafa um mótframlag. Samningurinn við höfuðborgarsvæðið er frábrugðinn samningunum við aðra landshluta, þar er eingöngu veitt fjármagn til framkvæmdar áhersluverkefna en ekki til uppbyggingarsjóðs.

Nýtt fimm ára tímabil sóknaráætlana landshluta hófst árið 2020 og stendur út árið 2024.

Greinargerðina má nálgast hér.

 

Heimild: byggdastofnun.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir