Gunnlaug Sigríður sýnir verk sín í gallerý HÚN
Nýr listamaður opnar sýningu sína í gallerý HÚN á Blönduósi í dag kl. 14:00 og mun sú sýning verða uppi fram yfir miðjan ágúst. Listamaðurinn er að þessu sinni heimamaður, Gunnlaug Sigríður Kjartansdóttir, og verða átta akrílverk til sýnis sem hún hefur gert á námskeiðum hjá Inese Elferte myndlistarkennara.
„Finnst henni Gunnlaugu dásamlegt að geta endurvakið myndlistardraum sem hún hefur átt frá unga aldri hér á Blönduósi. Er hún viss um að hún muni halda áfram að læra og þroskast í þessu námi sem tengist myndlistinni,“ segir í tilkynningu frá gallerýinu.