Heima er bezt
Síðastliðið sumar voru stutt myndbönd tekin upp í öllum sveitarfélögum á Norðurlandi vestra þar sem íbúar voru spurðir að því hvað þeim fyndist best við svæðið. Í frétt á síðu SSNV segir að hugmyndin hafi verið að beina athygli íbúa að jákvæðum þáttum þess að búa í landshlutanum og auka jákvæðni og bjartsýni en það er einmitt einn lykiláhersluþáttur Sóknaráætlunar Norðurlands vestra 2025-2029.
„Í stuttu máli sagt má segja að útkoman hafi sýnt að íbúum þykir vænt um heimkynni sín og sjái augljósa kosti við búsetuval sitt,“ segir í fréttinni.
Það var Skotta Film sem vann myndböndin fyrir SSNV og verður þeim dreift á miðlum samtakanna, bæði heimasíðu og samfélagsmiðlum næstu vikurnar og er fólk hvatt til að fylgjast vel með..Er öllum viðmælendum færðar bestu þakkir fyrir þátttökuna.
Fyrst er kynnt til leiks Dagmar Helga >
