Helmingi hjólbarða ábótavant

Meira en helmingur allra bíla er með of lítinn, mikinn eða mismikinn loftþrýsting í dekkjum samkvæmt nýrri könnun sem VÍS gerði á ástandi dekkja um 100 tjónabíla. Þetta verður að teljast áhyggjuefni því loftþrýstingur hefur áhrif á stöðugleika, hemlunarvegalengd og þar af leiðandi almennt öryggi ökutækja.

Könnun VÍS leiddi einnig í ljós að of margir ökumenn eru ekki með nægjanlega góð dekk undir bílunum sínum. Til dæmis voru 14% ökutækja með hjólbarða sem höfðu minna en 3mm dekkjamynstur, en 3mm er það lágmarks viðmið sem sett hefur verið í reglum um mynstursdýpt yfir vetrartíma. Þá voru 8% ökutækja á sumardekkjum að hluta eða öllu leyti, þrátt fyrir að könnunin hafi verið gerð um hávetur.

Á heimasíðu VÍS segir að félagið hafi frá 2012 gert kannanir á dekkjabúnaði tjónabíla að vetri til og má sjá mikla breytingu til batnaðar sér í lagi eftir 2014 þegar reglur um mynstursdýpt hjólbarða yfir vetrartíma voru hertar.

Árið í fyrra kom mjög vel út miðað við fyrri kannanir en í ár er annað upp á teningnum því samkvæmt könnuninni sem gerð var núna í febrúar komu allar mælingar um ástand dekkja verr út en árið á undan. 

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir