Hertar takmarkanir á samkomum – mörkin sett við 20 manns

Frá fréttamannafundi 13. mars 2020 þegar tilkynnt var um takmarkanir á samkomum á skólahaldi. Mynd: Stjórnarráðið.is.
Frá fréttamannafundi 13. mars 2020 þegar tilkynnt var um takmarkanir á samkomum á skólahaldi. Mynd: Stjórnarráðið.is.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður. Við öll mannamót þarf auk þess að tryggja að nánd milli manna verði yfir tveimur metrum. Ákvörðunin tekur gildi á miðnætti í kvöld (þ.e. aðfaranótt þriðjudags). Takmörkun á skólahaldi verður óbreytt. 

Á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að sóttvarnalæknir hafi haft þessar aðgerðir til skoðunar síðustu daga, með hliðsjón af þróun mála hér á landi, tilmælum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og í ljósi aðgerða annarra ríkja.

Helstu áhrif frekari takmörkunar:
Allar fjöldasamkomur þar sem fleiri en 20 manns koma saman eru óheimilar meðan takmörkunin er í gildi. Á það jafnt við hvort sem fólk kemur saman í opinberum rýmum eða einkarýmum.

Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga.

Á öllum vinnustöðum eða þar sem önnur starfsemi fer fram skal vera tryggt að ekki séu fleiri en 20 einstaklingar í sama rými. Þessar takmarkanir eiga einnig við um almenningssamgöngur og aðra sambærilega starfsemi.

Sérstakar reglur gilda um matvöruverslanir og lyfjabúðir. Þar verður heimilt að hafa allt að 100 manns inni í einu, að því gefnu að hægt sé að halda a.m.k. 2 metra fjarlægð milli einstaklinga. Ef matvöruverslanir eru yfir 1.000 m2 er heimilt að hleypa til viðbótar einum einstaklingi fyrir hverja 10 m2 þar umfram en þó aldrei fleiri en 200 viðskiptavinum.

Lokun samkomustaða og starfsemi vegna sérstakrar smithættu
Sundlaugum, líkamsræktarstöðvum, skemmtistöðum, spilasölum, spilakössum og söfnum skal lokað meðan á þessum takmörkunum stendur.

Starfsemi og þjónusta sem krefst mikillar nálægðar milli fólks eða skapar hættu á of mikilli nálægð er óheimil. Þar undir fellur allt íþróttastarf og einnig allar hárgreiðslustofur, snyrtistofur, nuddstofur og önnur sambærileg starfsemi. Þetta á einnig við um íþróttastarf þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér, s.s. skíðalyftur.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir