Húnavatnshreppur auglýsir styrki vegna viðburða og verkefna

Húnavatnshreppur hefur ákveðið að gefa félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum tækifæri til að sækja um styrki vegna viðburða eða verkefna sem samræmast hlutverki sveitarfélagsins eða eru í samræmi við stefnu þess og áherslur, vegna fjárhagsársins 2021.

Í auglýsingu á vef sveitarfélagsins segir að styrkir séu ekki veittir eftir á og að styrkveiting feli ekki í sér fyrirheit um frekari skuldbindingu af hálfu sveitarfélagsins nema gerður sé sérstakur samningur þess efnis.

Umsóknarfrestur er til og með 11. desember næstkomandi. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem finna má á vef Húnavatnshrepps.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir