Innlausnarvirði mjólkur og sauðfjár árið 2019

Virði greiðslumarks mjólkur og sauðfjár sem innleysa má til ríkisins hefur nú verið reiknað út samkvæmt ákvæðum í reglugerðum um stuðning í nautgripa- og sauðfjárrækt. Innlausnarvirði mjólkur er 100 kr./ltr. og sauðfjár 11.705 kr./ærgildi.

Á heimasíðu Matvælastofnunar kemur fram að innlausnar ærgilda skal óska eftir eigi síðar en 20. janúar nk. og innlausn greiðslumarks mjólkur skal fara fram 1. mars, 1. maí og 1. nóvember skv. ákvæðum reglugerðar um stuðning við nautgriparækt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir