Jólahús ársins á Blönduósi

Húsið við Brekkubyggð 21. Mynd:huni..is
Húsið við Brekkubyggð 21. Mynd:huni..is

Húnahornið stóð fyrir vali á jólahúsi ársins á Blönduósi líkt og gert hefur verið allt frá síðustu aldamótum að undanskildu einu ári. Að þessu sinni var það húsið að Brekkubyggð 21 sem bar af að mati lesenda Húnahornsins.

Í umsögn um húsið á vef Húnahornsins segir: „Húsið og garðurinn er fallega skreytt mörgum jólaljósum og sannarlega vel að þessari viðurkenningu komið. Eigendur hússins eru Atli Einarsson og Hafrún Halldórsdóttir. Þetta er í annað sinn sem hús við Brekkubyggð fær þessa viðurkenningu en það gerðist síðast árið 2001 eða þegar jólaleikurinn var fyrst haldinn.“

Í umsögnum sem húsið fékk segir meðal annars:

„Glæsileg skreyting, sérstaklega í garðinum, hreindýrin eru dásamleg.“
„Skemmtilega skreytt, mikið af fallegum jólaljósum.“
„Stílhreint og fallegt, hús og garður.“
„Mjög jólalegt og fallegt hús.“
„Virkilega fallega skreytt.“

Þau hús sem oftast voru tilnefnd fyrir utan Brekkubyggð 21 voru Holtabraut 8, Garðabyggð 18, Brekkubyggð 10, Hlíðarbraut 3 og 15 og Melabraut 13.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir