Jólatré fjarlægð á morgun og mánudag
Á mánudag geta íbúar Blönduósbæjar sett jólatrén sín út fyrir lóðamörk þar sem þau verða fjarlægð. Íbúar í hinum dreifða hluta Blönduós fá sín fjarlægð með almennri sorphirðu á morgun 7. janúar.
Þeir sem ekki nýta sér þessa þjónustu er bent á Endurvinnslustöð Blönduósbæjar við Efstubraut, sem er opin á mánudögum, miðvikudögum og laugardögum.
Jafnframt eru íbúar Blönduóss beðnir að fjarlægja flugelda sína af götum, gangstéttum og opnum svæðum.
