Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps leggur land undir fót

Helgina 9.-10.mars nk. mun Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps leggja land undir fót og flytja fólki sunnan heiða söng- og leikverkefnið „Ég hef lifað mér til gamans“. Dagskráin byggist á lífshlaupi Björns Pálssonar, stórbónda og alþingismanni á Ytri Löngumýri, en Björn var litríkur persónuleiki og þjóðsagnapersóna í lifanda lífi. Textahöfundur er Jóhanna Halldórsdóttir, Brandsstöðum í Blöndudal.

Í för með kórnum verður hljómsveit Skarphéðins H. Einarssonar og valinkunnir lesarar sem kynna Björn og segja af honum ýmsar sögur. Þar kemur margt forvitnilegt fram því á langri æfi glímdi Björn við lögspekinga, póiitíkusa og náttúruöflin og hafði jafnan sigur. Gamansemi og stríðni Björns var landsfræg og verður þeim eðlisþáttum hans gerð góð skil í dagskránni.

Söng- og leikverkefnið verður flutt í Tónbergi á Akranesi föstudagskvöldið 9. mars kl. 20.30, í Langholtskirkju laugardaginn 10. mars kl. 14.00 og Félagsheimilinu á Flúðum þann sama dag kl. 20.30.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir