Kosning til biskups Íslands hafin

sr.Guðrún, sr.Elínborg og sr. Guðmyndur Karl. MYND KIRKJAN.IS
sr.Guðrún, sr.Elínborg og sr. Guðmyndur Karl. MYND KIRKJAN.IS

Á kirkjan.is kemur fram að kosning til biskups Íslands hefst í dag 11. apríl kl. 12:00 og lýkur kl. 12:00 á hádegi þann 16. apríl.
Kosningin fer fram með rafrænum hætti á https://kirkjan.is/kosning

Í kjöri til biskups Íslands eru þau þrjú sem flestar tilnefningar fengu þegar starfandi prestar og djáknar tilnefndu úr hópi presta.

Þau eru sr. Elínborg Sturludóttir prestur í Dómkirkjunni í Reykjavík, sr. Guðmundur Karl Brynjarsson sóknarprestur í Lindakirkju og sr. Guðrún Karls- Helgudóttir sóknarprestur í Grafarvogskirkju.

Á kjörskrá eru 2283, þar af 2116 leikmenn og 167 prestar og djáknar. Kjörstjórn telur atkvæðin innan sólarhrings frá því að kosningu lýkur. Starfsreglur sem kirkjuþing hefur samþykkt um kosningu biskups Íslands má finn hér. Þar kemur fram að ef ekkert þeirra sem í kjöri er fær meiri hluta atkvæða þarf að kjósa aftur á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir