Kveikt á norska jólatrénu á Blönduósi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
06.12.2013
kl. 09.24
Kveikt verður á jólatrénu við Blönduóskirkju sunnudaginn 8. desember að lokinni aðventumessu í kirkjunni um kl. 17:00. Að venju er það vinabærinn Moss í Noregi sem færir Blönduósbæ jólatréð að gjöf.
Sungin verða jólalög og fregnir herma að jólasveinar verði komnir á stjá. Húnahornið segir frá þessu.
Fleiri fréttir
-
Vesturfarasetrið á Hofsósi fagnar 30 ára afmæli í dag
Í tilefni afmælisins hefst hátíðardagskráin kl. 17:00 í félagsheimilinu Höfðaborg. Á setrinu er saga þeirra Íslendinga sem fluttust til Norður-Ameríku á árunum 1850–1914 gerð skil í máli og myndum.Meira -
„Bóndinn á Bessastöðum veitir bóndanum í Hvammshlíð ...“
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni 24.06.2026 kl. 15.18 oli@feykir.is„Ritari forsetans hringdi í mig, þetta var eftirminnilegt símtal,“ sagði Karólína Elísabet bóndi í Hvammshlíð þegar Feykir spurði hana á dögunum hvernig henni hefði liðið þegar hún fékk fréttir af því að Forseti Íslands ætlaði að sæma hana Fálkaorðunni á Bessastöðum þann 17. júní sl. Orðuna fékk hún fyrir frumkvöðlastarf í baráttunni gegn riðu í sauðfé.Meira -
Aðsóknin á Rabarbarahátíðina fram úr björtustu vonum
„Rabarbarahátíðin í Gamla bænum á Blönduósi er haldin í þriðja sinn í ár. Hátíðarnar hafa gengið mjög vel svo ekki sé meira sagt,“ segir Iðunn Vignisdóttir, ein forsvarskvenna hátíðarinnar sem fer fram laugardaginn 27. júní. „Þær stöllur, Elfa Þöll Grétarsdóttir og Björk Bjarnadóttir, renndu alveg blint í sjóinn þegar þær héldu fyrstu hátíðina og vissu ekkert hverju væri við að búast en um 500 manns sóttu þá hátíð. Síðustu hátíð sóttu svo um 700 manns og við vonumst eftir svipuðum fjölda í ár.“Meira -
Farsælt starf í Glaumbæjarkirkju með góðum vinum og sveitungum
Haldið var upp á 100 ára afmæli Glaumbæjarkirkju þann 14. júní síðastliðinn en kirkjan var vígð 13. júní 1926 en árið 1925 stóð séra Hallgrímur Thorlacius fyrir byggingu nýrrar kirkju úr steini eftir að timburkirkjan, sem áður stóð á hlaðinu við Glaumbæ, brotnaði í aftakaveðri árið 1923. Í tilefni af aldarafmælinu var afmælismessa í kirkjunni og vegleg afmælisveisla á Löngumýri í kjölfarið. Gísli Gunnarsson vígslubiskup prédikaði en hann var prestur Glaumbæjarkirkju í rúm 40 ár. Feykir spurði séra Gísla út í afmælið, kirkjuna og söguna.Meira -
Reynsluboltinn Dee Bost til liðs við Stólana
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur náð samkomulagi við hinn gríðarlega reynslumikla leikstjórnanda, Dee Bost, um að ganga til liðs við félagið. Í fréttatilkynningu frá deildinni segir að Bost komi til Tindastóls með feril sem talar sínu máli. Hann hefur leikið í sterkustu deildum Evrópu, þar á meðal EuroLeague, EuroCup og Basketball Champions League, auk þess að spila með búlgarska landsliðinu.Meira
