Kynning á dreifnámi Austur-Húnavatnssýslu

Á morgun, fimmtudaginn 14. febrúar, munu Lee Ann Maginnis, umsjónarmaður dreifnáms í A-Hún, Margrét Helga Hallsdóttir, námsráðgjafi FNV, Þórdís Hauksdóttir, fræðslustjóri og fulltrúar frá nemendafélagi FNV kynna námsframboð, félagslíf og aðstöðu dreifnáms í A- Hún og FNV. Fundurinn fer fram í húsnæði dreifnámsins, Húnabraut 4, Blönduósi. klukkan 17:00.

Allir nemendur í 9. og 10. bekk í grunnskólum A-Hún eru sérstaklega boðaðir til fundarins ásamt foreldrum eða forráðamönnum. Dreifnám í A-Hún er samvinnuverkefni Félags- og skólaþjónustu A-Hún og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Markmið dreifnáms er að bjóða nemendum upp á nám í heimabyggð í eitt til tvö ár eftir grunnskóla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir