Landsvirkjun gerir rafmagnssamning við dótturfélag Etix Everywhere Borealis fyrir gagnaver á Blönduósi

Forstjórarnir Hörður Arnarson og Björn Brynjúlfsson innsigla samninginn.
Forstjórarnir Hörður Arnarson og Björn Brynjúlfsson innsigla samninginn.

Landsvirkjun og gagnaversfyrirtækið Etix Everywhere Iceland ehf., dótturfélag Etix Everywhere Borealis, hafa undirritað rafmagnssamning um afhendingu 25 MW til nýs gagnavers á Blönduósi. Gagnaverið hefur hafið rekstur og standa þegar yfir framkvæmdir við stækkun þess en gagnaverið verður fyrsti stórnotandi rafmagns sem tengist beint við tengivirki Landsnets við Laxárvatn í Blönduósbæ.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun kemur frama að fyrirtækið verði þriðji viðskiptavinur Landsvirkjunar í ört vaxandi gagnaversiðnaði hér á landi ef samningar ganga eftir. Umsvif Etix Everywhere Borealis hafa aukist hratt undanfarin misseri og verður gagnaverið á Blönduósi stærsta gagnaver sem fyrirtækið kemur að á Íslandi, en að auki rekur fyrirtækið gagnaver í Reykjanesbæ.

Áætlað er að tölvur í gagnaverum í beinni eða óbeinni eigu Etix Everywhere Borealis verði um 30 þúsund talsins eftir þessa stækkun, en nýju gagnaverin eru svokölluð „High Performance Computing“ ver, þar sem mikil reiknivinnsla er fyrir hendi.

„Eftirspurn eftir orku Landsvirkjunar, sem unnin er úr endurnýjanlegum orkugjöfum, fer áfram vaxandi og með þessum samningi hefur enn eitt öflugt fyrirtækið bæst í hóp alþjóðlegra viðskiptavina okkar. Samningurinn staðfestir samkeppnishæfni Íslands á alþjóðlegum raforkumörkuðum, rennir fleiri stoðum undir reksturinn og styður við fjölbreytta uppbyggingu iðnaðar á Íslandi,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.

Björn Brynjúlfsson, forstjóri Etix Everywhere Borealis, segir fyrirtækið vera í uppbyggingarfasa á nýrri kynslóð gagnavera sem nýta íslenskar umhverfisaðstæður og sérþekkingu Etix Everywhere í hönnun og smíði gagnaverslausna. „Uppbyggingin á Blönduósi er markvisst skref í að minnka umhverfisfótspor viðskiptavina okkar og samningsorkan gerir okkur kleift að fara í umtalsverðar stækkanir þar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir