Látum rödd okkar heyrast

Eins og flestum er kunnugt, þá hafa staðið yfir mótmæli vegna óheyrilegs niðurskurðar til HSB umfram aðrar stofnanir en nú er komið að stóru stundinni og boðað til mótmælastöðu fyrir utan HSB á Blönduósi í dag.

Undirskriftarhópurinn á Blönduósi hvetur alla til að mæta hjá stofnuninni kl. 14:00 í dag og sýna í verki að ekki sé ásættanlegt að fá ekki að sitja ekki við sama borð og aðrir þegar kemur að niðurskurði í heilbrigðismálum. Þingmenn kjördæmisins sem og sveita- og bæjarstjórnir ásamt heilbrigðisráðherra hafa verið boðuð á staðinn til að vera viðstödd mótmælin og hefur Álfheiður heilbrigðisráðherra þegar boðað komu sína. -Látum nú rödd okkar heyrast og sýnum fram á að hægt er að mótmæla annarsstaðar en í Reykjavík og ná árangri á friðsamlegan og málefnalegan hátt, segir í yfirlýsingu Undirskriftarhópsins.

Fleiri fréttir