Leikfélag Blönduóss með flóamarkað
Leikfélag Blönduóss hefur í hyggju að halda flóamarkað á fatnaði úr búningageymslu félagsins. Þar verður hægt að gramsa í ýmsum skrautlegum flíkum og gera margvísleg góð kaup.
Á vefmiðlinum Huni.is kemur fram að Flóamarkaðurinn verður haldinn laugardaginn 8. október nk. á milli kl. 11 og 16. Leikfélagið vill hvetja aðra til að taka þátt og að skapa þar með svokallaða „Kolaportsstemningu.“
Leikfélagið hvetur fólk til að kíkja í geymslur sínar og skápa eða að draga fram handverkið sitt og vera með. Þeir sem vilja panta borð geta haft samband við Kristínu í s. 847 1852 en borðið mun kosta 2000 kr.
