Leitað að lagi fyrir Höfðaskóla
Í tilefni af 70 ára afmæli Höfðaskóla á Skagaströnd efnir skólinn til samkeppnis um skólasöng bæði lag og texta og einnig merki skólans.
Á heimasíðu skólans segir að lagið þurfi að vera í þægilegri söngtóntegund og textinn að einhverjum hluta að passa einkennisorðum skólans en þau eru; styrkur, vinsemd, virðing. Merki skólans verður notað sem táknmynd hans á opinberum vettvangi.
Þátttakendur skila hugmyndum sínum til skólastjóra fyrir 1. febrúar 2010 en nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans.
