Lestrarátak í unglingadeild Blönduskóla

Allir í unglingadeild Blönduskóla, 38 krakkar, tóku þátt í lestrarátaki Blönduskóla og alls voru lesnar 19.587 bls. Það var keppni á milli bekkja hvaða bekkur læsi flestar blaðsíður að meðaltali. 10. bekkur vann þetta árið en meðtal þeirra var 694 bls. á hvern nemanda.

Vefsíðan Óvitinn í Blönduskóla segir þannig frá: Átakið byrjaði svoleiðis að Berglind kennari lestrarprófaði alla en svo þegar því lauk gerði hún það aftur til að sjá árangur hvers og eins. Á meðan átakið var þá fengu nemendur að jafnaði um 15 mínútur á dag í skólanum til að lesa. 

Árangur nemenda var rosalega flottur en þeir sem bættu sig mest í 8. bekk voru þau Sófus um 33,7%, Arinbjörn um 26,7%, Hrafnhildur um 23,9% og Hrafn Már um 22,9%.

Í 9. bekk bættu sig mest þau Steinunn um 16%, Atli um 13,9% og Birta um 8%.

Í 10. bekk bættu sig mest þau Sunna Sól um 27,4%, Fróði um 18% og Elínborg um14,6%

Þá reiknaði Berglind líka út hverjir lásu mest í hverjum bekk og það voru þær Bergþóra í 10. bekk sem las 1766 bls., Hrafnhildur Una  í 9. bekk sem las 1522 bls. og Guðrún Dóra í 8. bekk sem las 1584 bls.

Þetta er glæsilegur árangur og allir ofantaldir og bekkurinn sem last mest fengu glæsileg verðlaun!

/Elínborg Telma 10. bekk.

Fleiri fréttir