Listaverk sýnd á bakhlið Kvennaskólans

Kvennaskólinn á Blönduósi. Mynd:FE
Kvennaskólinn á Blönduósi. Mynd:FE

Verk listakonunnar Josefin Tingvall eru nú til sýnis á útivegg Kvennaskólans á Blönduósi og verða til næsta sunnudags, 27. október. Hér er um að ræða myndband sem varpað er á bakhlíð hússins, alltaf á milli klukkan 17: 30 og 22:00. Veggurinn sést vel frá göngustígnum meðfram Blöndu og gamla bænum.

Josefin Tingvall er textíllistakona frá Svíðþjóð. Hún hlaut styrk á vegum Textíllistamiðstöðvarinnar og Nordic Culture Point árið 2019 til að dvelja í listamiðstöðinni í september og október.

,,Í myndbandinu sést landslag í stöðugri hreyfingu, eins og í bíltúr. Myndskeiðið, sem ég þróaði á meðan ég dvaldi í listamiðstöðinni, á að veita ró og skapa hugleiðsluástand," segir Josefin Tingvall.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir