Ljón Norðursins fær loks rekstrarleyfi
Í síðustu viku vakti auglýsing frá veitingastaðnum Ljóni Norðursins á Blönduósi athygli þar sem sagði að leyfi hafi verið gefið út fyrir Ljón norðursins án athugasemda, og tók eitt ár. Opið eins og áður. Þegar eigandi staðarins, Jónas Skaftason, var spurður út í málið sagði hann að reynt hafi verið að bregða fyrir hann fæti af Blönduósbæ.
Jónas segir að það hafi tekið hann eitt ár að fá rekstrarleyfið endurnýjað fyrir staðinn. -Þannig var að staðurinn hafði verið í rekstri í tvö ár þegar leyfið rann út og ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég fæ bréf frá sýslumanni um að svo sé. Ég taldi víst að það yrði auðvelt að endurnýja það þar sem forsendur hefðu ekki breyst, en nei takk! Þá fer af stað mikil herferð gegn mér sem staðið hefur yfir í heilt ár, segir Jónas gramur en hann hefur í heilt ár staðið í stríði við yfirvöld við að bera af sér sakir og kostað hann mikla fjármuni. –Þeir voru ekki með neitt á mig og það tók heilt ár að vinda ofan af því og ég var blásaklaus.
Þegar leitað var til Arnars Þórs Sævarssonar bæjarstjóra á Blönduósi sagði hann að málið snerist um leyfismál sem sýslumaðurinn á Blönduósi gefur út. -Að mati sýslumannsins var honum ekki stætt á að gefa út leyfi þar sem gerðar voru athugasemdir við brunaöryggismál hússins. Eigandi Ljóns norðursins hefur ekki viljað sætta sig við kröfur sem kveðið er á um í byggingarreglugerð. Nú hefur eigandinn loksins gengist undir þessar kröfur og sýslumaðurinn því gefið út leyfið, segir Arnar Þór.
Jónas segir það ósannindi að hann hafi ekki sætt sig við kröfu byggingarreglugerðar vegna Ljóns Norðursins. -Það eru ósannindi að ég hafi loksins sætt mig við þetta og hef þegar mótmælt því og krafist fullnaðarleyfis án athugasemda.
Í Feyki sem kemur út í dag er viðtal við Jónas þar sem hann segir frá fyrirtækinu sem hann rekur en auk kaffihússins er hann með gistihús, þrjú smáhýsi sem eru staðsett við húsið.
