Maður ársins á Norðurlandi vestra - Feykir auglýsir eftir tilnefningum

Sigurður Hansen var Maður ársins 2019 á Norðurlandi vestra. Mynd:PF
Sigurður Hansen var Maður ársins 2019 á Norðurlandi vestra. Mynd:PF

Líkt og undanfarin ár leitar Feykir til lesenda með tilnefningar um mann ársins á Norðurlandi vestra. Sigurður Hansen á Kringlumýri var kjörinn maður ársins fyrir árið 2019 en nú er komið að því að finna verðugan aðila til að taka við nafnbótinni Maður ársins á Norðurlandi vestra 2020.

Tilnefningum skal koma til Feykis á netfangið feykir@feykir.is í síðasta lagi fyrir miðnætti sunnudagskvöldið 13. desember. Tilgreina skal fullt nafn, gera stutta grein fyrir viðkomandi einstaklingi og rökstyðja valið á einhvern hátt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir