Mikið um að vera á Húnavöku
Fjöldi manns var mættur á Blönduós um helgina til að taka þátt í Húnavöku en dagskrá var viðamikil og metnaðarfull.
Veðrið var fínt um helgina ef undan er skilið föstudagurinn en segja má að sólin hafi mætt á Húnavökuna því þoka var allsráðandi í næstu sveitum.
Að sögn Lögreglunnar á Blönduósi var helgin þokkaleg, séð með augum löggæslumannanna en alltaf má bæta ástandið en einhverjir pústrar urðu milli manna eftir dansleik á laugardagskvöldið. Annars gekk helgin vel og óhætt að fullyrða að vel hafi til tekist.

