Mikil mildi að ekki fór verr

Sumarbústaðurinn er mikið skemmdur. SKJÁSKOT ÚR FRÉTT SJÓNVARPS
Sumarbústaðurinn er mikið skemmdur. SKJÁSKOT ÚR FRÉTT SJÓNVARPS

Lögregla telur að gassprenging hafi orðið í sumarbústað í Langadal, skammt frá Geitaskarði, síðastliðinn laugardagsmorgun. Sex ungmenni voru í sumarbústaðnum þegar sprengingin varð og þykir mikil mildi að ekki fór verr en þrjú þeirra voru flutt til aðhlynningar á sjúkrahúsið á Akureyri. Rætt var við eitt þeirra á vef Fréttablaðsins í dag.

Aron Kristján Sigurjónsson, sem var staddur ásamt fimm öðrum í bústaðnum, segir að hann hafi vaknað upp við það um elleftu leytið á laugardagsmorgun að spýta, trúlega úr efri koju, féll í andlit hans svo honum blæddi mikið og brak úr lofti og veggjum hússins hrundi yfir hann og kærustu hans. „Við vöknum við sprengingu sem olli því að sumar­bú­staðurinn fór vægast sagt í tætlur,“ segir Aron í samtali við Fréttablaðið. Herbergið sem þau sváfu í var við hliðina á skúr þar sem talið er að sprengingin hafi orðið. Hann segir að sexmenningarnir hafi komið í bústaðinn kvöldið áður og skemmt sér við spilamennsku en ekki komið nálægt neinum gastækjum í bústaðnum.

Aron segir viðbragðsaðila hafa verið örsnögga á vettvang og er hann þakklátur fyrir að ekki fór verr en hann fékk stóran skurð á höfuð, tönn í neðri gómi brotnaði og einnig er hann tognaður og marinn víða um líkamann. Þá hlaut kærasta hans á­verka á líkama.

Sjá má myndir af vettvangi á vef Fréttablaðsins.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir