Nemendur kryfja fiska
Nemendur í áttunda bekk Höfðaskóla á Skagaströnd hafa voru á dögunum í verklegum tíma í náttúrufræði þar sem þau krufðu nokkra fiska.
Hafa krakkarnir verið að læra í bókinni Lifandi veröld og þegar þau voru búin að læra um fiskana í bókinni fóru þau í verklega tíma og krufðu nokkra fiska. Þau voru m.a. með steinbít, flatfiska og ýsu. Þegar þau opnuðu einn fiskinn komu í ljós m.a. nokkrir krossfiskar, öllum til mikillar undrunar.
Heimasíðu skólans má sjá hér

