Nes listamiðstöð nýtur vinsælda

Íbúum Skagastrandar fjölgaði um 21% á síðasta ári ef með eru taldir þeir 108 listamenn sem bjuggu í bænum á árinu á vegum Ness listamiðstöðvar. Listamiðstöðin var opnuð árið 2008 en síðan þá hafa 173 listamenn dvalið á Skagaströnd.
Listin hefur mikil og hefur ótvírætt góð áhrif á sveitarfélagið, til dæmis rekstur þjónustufyrirtækja svo sem matvöruverslun, veitingastað, kaffihúss og svo framvegis. Vonir standa til að enn fleiri listamenn komi á þessu ári, jafnvel um 140 manns. Íbúðarmálin takmarka þó fjölgun þeirra því ekkert er um lausar íbúðir í bænum.

Flestir listamenn koma frá Bandaríkjunum og að auki hafa margir Englendingar, Írar og Þjóðverjar dvalið á Skagaströnd. Margt bendir til þess að listamennirnir séu einstaklega duglegir að kynna listamiðstöðina, Skagaströnd og Ísland á meðal samlanda sinna þegar heim er komið.

Til Skagastrandar komið listamenn alls staðar af úr heiminum og koma margir um langan veg svo sem listamenn sem komið hafa frá  Brasilíu, Austur Tímor, Singapore og Suður Kóreu. Mörgum er minnisstæð indæl kona frá Ástralíu sem lét sér ekki nægja að halda listsýningu og heldur steig á svið á í Kántrýbæ eftir spurningakeppnina og söng þjóðlagatónlist frá heimalandi sínu. Hún hafði aldrei séð snjó og þótti einna furðulegast að hún heyrði marr þegar hún gekk um í snjó. Enginn hafði sagt henni neitt um þetta einkennilega hljóð.

Fjölmargir listamenn halda enn góðum tengslum við Nes listamiðstöðina og ekki síður ýmsa íbúa á staðnum. Nefna má að nærri tvö þúsund „vinir“ eru skráðir á Fésbókarsíðu listamiðstöðvarinnar.

Eftirfarandi er ágætt dæmi um áhugaverða vefslóðir listamanna sem dvalið hafa á Skagaströnd.

http://theballparkiniceland.wordpress.com/ 
http://ameriskur.blogspot.com/ 
http://carnetsndart.blogspot.com/ 
http://juliepoitrassantos.blogspot.com/ 
http://lindsaypalmer.blogspot.com/2010/01/this-is-tale-of-adventure.html 
http://www.renatapadovan.com/frozenatsea/content/index.html 
http://olivergardiner.blogspot.com/
Flestum sem starfað hafa í ferðaþjónustu er kunnugt um hið mikla gildi sem frásagnir ánægðra ferðamanna hafa.
Listamenn sem til Skagastrandar koma eru miklir áhrifavaldar og hvetja aðra listamenn til að sækja um dvöl í bænum.

Fleiri fréttir