Hafði planað ferð á tónleika með Paul en þá kom Covid... / RAGNAR KARL

Ragnar Karl Ingason. AÐSEND MYND
Ragnar Karl Ingason. AÐSEND MYND

Það er Ragnar Karl Ingason (1964) sem svarar Tón-lystinni í þetta skiptið. Ragnar býr á Grandanum í Reykjavík en fæddist og ólst upp á Hvammstanga, sonur Sigríðar Karlsdóttir sjúkraliða og Inga Bjarnasonar mjólkurfræðings. „Móðir mín ólst upp á Laugarbakka í Miðfirði en faðir minn flutti á sínum tíma til Hvammstanga frá Selfossi,“ segir Ragnar Karl sem einnig bjó um tíma á Blönduósi.

Hann hefur lengi verið viðloðandi tónlist, spilar á gítar, bassa, munnhörpu og mandólín. Aðspurður um helstu afrekin á tónlistarsviðinu segir hann: „Erfitt að segja. Hef verið í hinum ýmsu hljómsveitum í gegnum tíðina en ætli það sé ekki mesta afrekið að hafa ásamt ásamt æskufélögum mínum Skúla Þórðarsyni og Geir Karlssyni endurvakið Slagarasveitina eftir u.þ.b. 15 ára hlé með frábærum liðstyrk frá Valdimar Gunnlaugssyni, söngvara,og Stefáni Ólafssyni. Og í framhaldi af því farið að taka upp okkar eigin tónlist sem finna má á Spotify.“

Hvaða lag varstu að hlusta á? Eitthvað lag með Nice Cave sem ég hef verið að hlusta á þessa dagana.

Uppáhalds tónlistartímabil? Tímabilið 1963 til 1970 eða frá því að Bítlarnir koma fram er ótrúlega spennandi tímabil en þá komu margar flottar hljómsveitir fram sem eiga lög sem hafa elst vel. Svo má nefna pönkbylgjuna sem gekk yfir um 1980. Þá komu fram margar áheyrilegar hljómsveitir eins og sjá má í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík. Það var skemmtilegt tímabil.

Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Við í Slagarasveitinni erum þessa dagana að taka upp fjögur lög í hljóðveri sem munu koma út í vor og sumar. Eðli málsins samkvæmt þá fylgir þessari vinnu mikil hlustun og ég er að því þessa dagana.

Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Á mínu æskuheimili á Garðavegi 15 á Hvammstanga var til plötuspilari sem var hlustað mikið á og með tíð og tíma safnaðist upp ágætis plötusafn með fjölbreyttri músík. Móðir mín spilaði á gítar og hljómborð og hún átti það til að syngja og spila fyrir okkur systkinin. Í minningunni voru það oft lög eftir Sigfús Halldórsson.

Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Fyrsta hljómplatan sem ég keypti mér var með Hljómsveitinni Paradís.

Hvaða græjur varstu þá með? Plötuspilari og svo var til kassettutæki sem var óspart notað til að taka upp lög úr útvarpinu.

Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? Ævintýri með Björgvini Halldórssyni og hljómsveitinni Ævintýri

Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Ég á ekkert svoleiðis lag.

Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Hef prufað nokkrum sinnum að setja Deildartungubræður á fóninn við þessar aðstæður þegar liðið er á kvöldið. Klikkar ekki en tímasetningin þarf að vera rétt.

Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Eitthvað rólegt með Leonard Cohen.

Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Færi á tónleika með Paul McCartney í Barcelona með Skúla Þórðarsyni, Geir Karlssyni og eiginkonum. Þessa ferð var búið að skipuleggja, kaupa miða og átti að verða að veruleika fyrir tæpu ári síðan en Covid eyðilagði þau áform.

Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Bubbi átti sviðið á þeim tíma sem ég fékk bílprófið. Einnig var ég þá búinn að uppgvöta David Bowie og hlustaði mikið á hann.

Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Þeir eru nú fjölmargir. Paul McCartney og David Bowie koma fyrst upp í hugann af erlendum tónlistarmönnum en hér innanlands eru það Bubbi, Magnús Eiríks, KK svo einhverjir séu nefndir.

Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út eða sú sem skiptir þig mestu máli? Verð að nefna Ísbjarnarblús með Bubba. Það var mikil breyting á hlustun á tónlist hjá mér og mínum vinahópi í framhaldi af útgáfu plötunnar á sínum tíma.

Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum?

I Hope That I Don´T Fall In Love With You - Tom Waits
Clay Pigeons - John Prine
Fljúðu burt dúfa – Auður
Into My Arms – Nice Cave & The Bad Seeds
Ragnheiður biskupsdóttir – Megas
No More Heroes – The Stranglers

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir