Nóg um að vera í Nes-listamiðstöð
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
14.06.2013
kl. 09.51
Það er ýmislegt um að vera hjá Nes-listamiðstöð á Skagaströnd í sumar. Á miðvikudagskvöldið var „Pecha Kucha“ listamannaspjall í Rannsóknarsetri HÍ. Á miðvikudag og fimmtudag býður svo textíllistamaðurinn Amy Tavern frá Bandaríkjunum upp á grunnnámskeið í útsaumi. Loks verður opið hús laugardaginn 22. júní.
