Ný heimasíða Skagastrandar

Sveitarfélagið Skagaströnd hefur endurnýjað og uppfært heimasíðu sína, www.skagastrond.is. Á síðunni segir að vefurinn hafi verið uppfærður miðað við þá þróun sem orðið hafi í allri samskiptatækni og sé orðinn snjalltækjavænn. Á vefnum er m.a. að finna ýmsar almennar upplýsingar um sveitarfélagið ásamt upplýsingum um stjórnsýslu, þjónustu og stofnanir þess.

Vefurinn var unnin í samstarfi starfsfólks sveitarfélagsins og fyrirtækisins Stefnu sem sá um vefhönnun og tæknilegar útfærslur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir