Ný reglugerð um skólastarf eftir páska

Mynd: Pexels/Julia M Cameron
Mynd: Pexels/Julia M Cameron

Staðnám getur hafist að nýju á öllum skólastigum eftir páskafrí með ákveðnum takmörkunum, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Á vef stjórnarráðsins kemur fram að reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi, sem birt var í dag, hafi verið unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið og taki í meginatriðum mið af appelsínugulum lit í litakóða viðvörunarkerfis fyrir skólastarf sem kynnt var að loknu umfangsmiklu samráði við skólasamfélagið fyrr í vetur, nema hvað íþróttir barna á leik- og grunnskólaaldri utan skóla eru óheimilar. Gildistími reglugerðarinnar er frá 1. apríl til og með 15. apríl.

„Við getum öll verið sammála um mikilvægi þess að gera nemendum á öllum skólastigum kleift að ljúka skólastarfinu á sem bestan hátt miðað við aðstæður,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra segir skólasamfélagið hafa sýnt ómældan sveigjanleika og þrautseigju í þessum aðstæðum. „Fyrir það erum við þakklát og stolt. Þessar ráðstafanir nú eru kunnuglegar mörgum frá því fyrr í vetur en vonandi þurfum við ekki að búa við þær lengi. Við erum bjartsýn þó staðan sé flókin og munum klára þetta saman.“

Leikskólar
Engin fjölda- eða nálægðartakmörkun gildir um börn á leikskólaaldri.
Hámarksfjöldi fullorðinna er 20 manns í rými, en starfsmenn mega fara milli rýma.
Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli en nota grímu ella.
Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til og skulu þá nota andlitsgrímu.

Grunnskólar
Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkun og grímuskyldu.
Hámarksfjöldi starfsmanna er 20 manns í rými og þeir mega fara milli rýma.
Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli og gagnvart nemendum en nota grímu ella.
Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 og blöndun milli hópa innan sama skóla er heimil.

Tónlistarskólar
Halda skal 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Annars skal nota grímur sé þess kostur.
Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 börn á grunnskólaaldri.
Viðburðir eru heimilir fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri með sömu skilyrðum og gildir um skólastarf þeirra.
Einstaklingar fæddir 2004 eða fyrr mega vera að hámarki 20 saman í rými og blöndun er heimil.
Um viðburði fyrir einstaklinga fædda 2004 fer eftir ákvæði um sviðslistir í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Framhaldsskólar
Hámarksfjöldi nemenda og starfsmanna í rými er 30.
Halda skal 2 metra nálægðartakmörkun milli nemenda og starfsfólks en nota grímu ella.
Blöndun nemenda milli hópa er heimil og starfsfólk má fara milli rýma.
Um viðburði tengda starfi eða félagslífi í framhaldsskóla fer eftir ákvæði um sviðslistir í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Háskólar
Hámarksfjöldi í kennslustofu og lesrýmum er 50.
Halda skal 2 metra nálægðartakmörkunum milli allra en nota grímu ella.
Blöndun nemenda ekki heimil.
Starfsmenn mega fara milli rýma.
Engir viðburðir eru heimilir í skólabyggingum.
Áréttað er að íþróttir barna á leik- og grunnskólaaldri utan skóla eru óheimilar samkvæmt gildandi reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir