Nýjar saumavélar í Húnavallaskóla
Í upphafi skólaársins haustið 2010 voru keyptar tvær nýjar saumavélar til hannyrðakennslu við Húnavalla. Hannyrðakennararnir, þær nöfnurnar Helga Búadóttir og Helga Gunnarsdóttir fóru á námskeið hjá versluninni Paff í Reykjavík til að læra á vélarnar þannig að þær nýttust sem best í kennslunni.
Á heimasíðu Húnavallaskóla segir að saumavélarnar hafi slegið rækilega í gegn og komast færri að en vilja í kennslustundum. Stefnt er að því að fjölga vélunum eftir áramótin ef fjárhagur skólans leyfir. Rétt er að benda á að það er afar mikilvægt fyrir skólann að hægt verði að halda í og hlúa að þeirri verklegu kennslu sem hefur verið boðið upp á hingað til.
