Bleiki súper kúl iPodinn var fullur af Bieber-lögum / MALEN ÁSKELS

Malen Áskelsdóttir (1999) er fædd og uppalin á Sauðárkróki en með fína framlengingarsnúru í Borgarfjörð eystra. Hún er dóttir Völu Báru (Vals Ingólfs og Önnu Pálu Þorsteins) og Áskels Heiðars sem gerir um þessar mundir út á Sturlungasöguna í 1238. Malen bæði syngur og spilar á hljómborð og gítar í dag en hún lærði á fiðlu hjá Kristínu Höllu frá 5-10 ára aldurs og segir að það hafi verið æðislegur grunnur.

„Ég hef gefið út eitt lag og vonandi verða þau fleiri á næstunni. Ég fór í söngnám í Kaupmannahöfn í fyrra sem gekk mjög vel og var ótrúlega skemmtilegt. Nú er ég í söngnámi í Reykjavík, er mikið að semja lög og hef verið að koma fram bæði á Sauðárkróki og á Borgarfirði eystra. Einu sinni var ég líka bakrödd á stóra sviðinu á Menningarnótt,“ segir Malen.

Hvaða lag varstu að hlusta á? Kærastinn minn er að steikja pönnukökur og er að spila John Mayer á meðan, eins og oft áður. John Mayer er æðislegur.

Uppáhalds tónlistartímabil? Ég er búin að búa til playlista hjá mér fyrir hvert tónlistartímabil svo ég geti hlustað á þau öll, en ætli ég myndi ekki velja 60´s.

Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Hressandi lög eins og Supalonely, Intentions með Justin Bieber og Ass Like That með Victoria Monét.

Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Aðallega svona pabbarokk eins og U2 og Bítlarnir en Emilíana Torrini hefur líka alltaf verið í uppáhaldi á mínu heimili.

Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Stóra systir mín sá um að hala niður tónlist fyrir mig því ég kunni það ekki og mér finnst mjög líklegt að hún hafi byrjað á því að setja inn öll lögin sem Taylor Swift var búin að gefa út á þeim tíma. En við hlustuðum líka mikið á Jóhönnu Guðrúnu, NYLON og auðvitað Magna frænda.

Hvaða græjur varstu þá með? Það var bleikur iPod, rosa kúl, og hann var ekki lengi að fyllast af Justin Bieber lögum.

Hvað var fyrsta lagið sem þú mannst eftir að hafa fílað í botn? Hmm kannski Replay með Iyaz.

Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Mér dettur svosem ekkert í hug, bara ef einhver syngur jólalög þegar það eru ekki jól.

Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Sko, ef við erum að tala um skvísupartí þá Sorry með Beyoncé eða I Wanna Dance with Somebody með Whitney.

Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Klárlega krúttuð Bítlalög eins og In My Life, Blackbird eða I´ll Follow the Sun.

Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ég hef nú þegar séð flesta mína uppáhalds tónlistamenn svo kannski myndi ég bara velja einhverja flippaða tónlistarhátíð í einhverju heitu landi í góðra vina hópi.

Hvaða músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Þegar ég var nýkomin með bílpróf var Drake í miklu uppáhaldi. Ég blastaði uppáhalds lögunum mínum með honum á rúntinum, t.d. Controlla, Get It Together og Passionfruit, og svo þegar ég fór í ræktina blastaði ég Drake lögunum sem eru meira pepp eins og God´s Plan.

Hvaða tónlistarmaður/kona hefur þig dreymt um að vera? Taylor Swift hefur mikil áhrif á mig við lagasmíðar og hefur ræktað country og singer/songwriter hliðina mína. Einnig Ed Sheeran og fleiri. En vilja ekki allir vera Beyoncé?! ROSALEG söngkona, sjálfsörugg og með flotta sviðsframkomu.

Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Úff...Ég hef ofspilað svo margar plötur en mér þykir til dæmis mjög vænt um plötuna Up All Night með One Direction.

Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum?

Lost on You - LP
Golden Hour - Kacey Musgraves
LOVISA - Felix Sandman
Birds - Emilíana Torrini
Pink Lemonade - James Bay
My Girl - The Temptations

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir