Nýtt skráningarkerfi hjá Héraðsskjalasafni A-Húnavatnssýslu

Heyskapur á Hólanesi 1904. Myndin flokkast undir óþekkta afhendingu hjá Héraðsskjalasafni Austur-Húnavatnssýslu.
Heyskapur á Hólanesi 1904. Myndin flokkast undir óþekkta afhendingu hjá Héraðsskjalasafni Austur-Húnavatnssýslu.

Tekið hefur verið upp skráningarkerfi hjá Héraðsskjalasafni Austur Húnavatnssýslu sem heitir AtoM. Nú þegar hafa verið skráðar um 80 afhendingar og tæplega 10 þúsund ljósmyndir af um það bil 40 þúsund, með upplýsingum um 5000 þúsund Húnvetninga ásamt um eittþúsund húsum og stöðum í sýslunni.

„Nú getur fólk skoðað í næði hvaða gögn og ljósmyndir hafa verið afhentar á safnið. Verið er að skrá eldri afhendingar smá saman en mestallt sem afhent hefur verið eftir árið 2017 er komið á netið,“ segir í tilkynningu frá héraðsskjalaverði. Ef skoða þarf eldri gögn er fólki bent á að hafa samband við safnið í síma 452 4526 eða á netfangið skjalhun@blonduos.is.

Safnið er opið milli klukkan 8 og 16 mánudaga til fimmtudaga en hægt er að hafa samband í síma 892 2432 ef mikið liggur við.

Slóðin á Atomvefinn er http://atomblonduos.fjolnet.is/index.php/?sf_culture=is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir