Opið hús hjá Nes listamiðstöð

Nes listamiðstöð á Skagaströnd verður með opið hús á morgun, laugardaginn 29. febrúar, og eru gestir boðnir velkomnir í stúdíóið að Fjörubraut 8 á Skagaströnd á milli kl. 15 – 17.

Þar verður hægt að hitta þá listamenn hvaðanæva úr heiminum sem dvelja við listamiðstöðina um þessar mundir.  Allir velkomnir, segir í tilkynningu frá listamiðstöðinni.

Fleiri fréttir