Opinn danstími á Skagaströnd

Á morgun laugardag verður opinn danstími á vegum UMF Fram kl. 15-17 í íþróttahúsinu á Skagaströnd en þar mun Andrea Kasper, dansari, kenna nútímadans með aðstoð nemenda sinna sem hafa verið hjá henni í vetur.

Öllum er heimilt að taka þátt eða horfa á og aldur skiptir engu máli. á vef Skagastrandar segir að Valdimar Jón Björnsson hafi smíðað balletstangir fyrir nemendurna og hafi þær komið að góðum notum.

Sex stúlkur hafa verið í dansnámi í vetur og hafa tekið stórstígum framförum og þær hvetja aðra til að taka þátt.

Fleiri fréttir