Opnun nýrrar líkamsræktarstöðvar á Skagaströnd
Að undanförnu hafa staðið yfir talsverðar breytingar á líkamsræktar aðstöðu í íþróttahúsinu á Skagaströnd og af því tilefni verður opið hús í dag, miðvikudaginn 17. Janúar, frá kl. 12:30-18:00.
Á heimasíðu Skagastrandar segir að tækin séu fengin frá World Class og verða þau kynnt af starfsfólki og einkaþjálfara samkvæmt leiðbeiningu og kennslu frá Ólafi Jóhannessyni stöðvarstjóra World Class. Einnig mun Þórey Fjóla Aradóttir einkaþjálfari kynna sína starfssemi.
Sveitarfélagið býður þessa aðstöðu gjaldfrjálst til 31. janúar en að þeim tíma loknum tekur við ný gjaldskrá.