Óskað eftir samstarfsaðila um rekstur tjaldsvæðisins á Blönduósi

Tjaldsvæðið á Blönduósi. MYND AF HÚNA / HÖSKULDUR B. ERLINGSSON
Tjaldsvæðið á Blönduósi. MYND AF HÚNA / HÖSKULDUR B. ERLINGSSON

Blönduósbær óskar eftir samstarfsaðila um rekstur tjaldsvæðisins á Blönduósi, sem er í Brautarhvammi við þjóðveg 1. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Blönduósbæjar fyrir 15. desember næstkomandi þar sem fram komi m.a. hugmyndir umsækjanda um rekstur svæðisins. 

Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið blonduos@blonduos.is og verður þeim öllum svarað, að því er segir í auglýsingu á vef bæjarins. Í framhaldi af fram komnum hugmyndum aðila áskilur Blönduósbær sér rétt til þess að ganga til samninga við hvaða aðila sem er eða hafna öllum.

Vinsælt tjaldsvæði í þægilegu umhverfi

Tjaldsvæðið er mjög vinsælt til að dvelja á og stutt er í alla þjónustu, s.s. sundlaug, leiksvæði, veitingarstaði og verslun. Svæðið er í fallegu umhverfi og rennur Blanda neðan við svæðið og stutt er einnig í útivistarsvæðið í Hrútey. Runnar skipta svæðinu upp og er þægilegt umhverfi fyrir tjöld, húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Rafmagnstenglar eru á nokkrum stöðum. Á svæðinu er leiksvæði og stutt í ærslabelg.Í þjónustuhúsinu er sturta, vatnssalerni, þvottavél og aðstaða til uppþvotta.  Þá er á svæðinu húsnæði fyrir skrifstofu eða aðra þjónustu.

Heimild: Húni.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir