Risavaxið gagnaver væntanlegt á Blönduós

Frá Blönduósi Mynd: Jón Guðmann

Nú eru yfirgnæfandi líkur taldar á að risastóru gagnaveri Greenstone ehf. verði valinn staður á Blönduósi, skv. því sem kemur fram í Morgunblaðinu um helgina. Búa menn sig undir að tilkynnt verði um verkefnið á næstu dögum eða vikum.

Endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin en verkefnið mun þó vera komið svo langt á veg að fátt á að koma í veg fyrir að hafist verði handa við framkvæmdir síðar á þessu ári, gangi allt eftir.
Eins og áður hefur komið fram á Feyki.is höfðu Greenstones menn gert í upphafi samkomulag við átta sveitarfélög vítt og breytt um landið en hafa nú þrengt hring sinn verulega svo nú stefnir í það að Blönduós verði líklega fyrir valinu. Gert er ráð fyrir 80 þúsund fermetra netþjónabúi sem mun þá samanstanda af nokkrum byggingum.

Gangi samningar eftir má gera ráð fyrir að hafist verið handa við framkvæmdir síðar á árinu og að 1 áfangi byggingarinnar yrði kominn í notkun eftir  1 - 1/2 ár. Uppundir 2000 manns gætu hugsanlega komið að  byggingu versins en Ístak verður aðalverktaki við framkvæmdirnar samkvæmt því sem komið hefur fram.

Til þess að gera sér grein fyrir stærðum í málinu þá er stærð bygginganna 8 hektarar, eða eins og 8 fótboltavellir eða 2 Smáralindir.

Fleiri fréttir