Rocky Horror í Hofi um helgina
Nemendafélag Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hefur undanfarin ár sett upp metnaðarfullar leiksýningar og fara nú í Hof á Akureyri með Rocky Horror.
Í ár varð engin breyting þegar Eysteinn Ívar Guðbrandsson leikstýrði frábærum leikurum skólans í söngleiknum Rocky Horror Picture Show. Sýningin sló heldur betur í gegn og sýndu þau kvöld eftir kvöld fyrir fullu húsi í Bifröst á Sauðárkróki fyrr í vetur. Nú ætla krakkarnir að slá um sig og setja sýninguna upp í Hofi Menningarhúsi Norðlendinga á Akureyri föstudaginn 9. maí og laugardaginn 10. maí.
Þetta er snilld sem þið viljið ekki missa af, eitt sjúskað sjabbí show og hægt er að nálgast miða HÉR.