Rúmlega 1700 gestir heimsóttu Hafíssetrið

Þriðjudagurinn 31. ágúst var síðasti opnunardagur Hafíssetursins á Blönduósi á þessu ári en rúmlega 1700 gestir heimsóttu Hafíssetrið í sumar og er það sambærilegt og í fyrra.

Gestir koma frá öllum heimshornum og hefur það vakið sérstaka athygli í sumar að þó nokkrir gestir komu frá Ástralíu. Þegar gestirnir  voru spurðir af hverju þeir koma til Íslands var svarið að Ísland hefur fengið mikla athygli í fjölmiðlum í Ástralíu undanfarið og það vekur áhuga á landinu.

Stjórn Hafíssetursins lýsir ánægju sinni yfir að svo margir hafi sýnt setrinu áhuga og þakkar gestum kærlega fyrir komuna. Hafíssetrið opnar að nýju næsta vor, en þá bætist við sýninguna heimildarmynd um hafísminningar heimamanna sem unnin var á vegum Hafíssetursins í sumar.

Hafíssetrið er opið eftir samkomulagi í vetur og getur fólk sent tölvupóst á hafis@blonduos.is ef áhugi er fyrir því að skoða setrið.

Fleiri fréttir